27.01.2012 14:22

2012



Árið 2012 byrjaði sorglega á Fremri-Fitjum en á nýjársdag kvaddi Geisli frá Fremri-Fitjum þennan heim eftir baráttu við krabbamein hann var þá á 24.aldursári
Geisli var okkur mikill, hann var einstaklega ljúfur, þæginlegur og góður, og maður tók varla eftir því að hann væri stóðhestur. Hann var ekki bara góður reið- og keppnishestur heldur skilaði hann okkur frábærum afkvæmum sem lang flest voru öll mjög auðveld eða já nánast sjálftamin og ekki spilti fyrir að þau voru nú í öllum litum. Hann gaf t.d. aldrei af sér alheilt rautt afkvæmi og bara örfá brún.
Geisla verður sárt saknað í okkar ræktun, en okkur til hamingju eigum við ræktunarhross undan honum. 
                         
                                             Hvíl þú í friði einstaki höfðingi!
  • 1
Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 88
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 114599
Samtals gestir: 43424
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 08:58:06